

Guðbjörg er eigandi Markaðsmála og einn af ráðgjöfum.
Guðbjörg Jóhannsdóttir býr að víðtækri reynslu af upplýsingatækni lengst af í fjármálageiranum. Hún hefur lokið BS gráðu í viðskiptafræði frá HÍ, MS gráðu í Alþjóðaviðskiptum frá HÍ og Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn, auk náms í stafrænni umbreytingu frá Columbia Business School og frá MIT Sloan School of Management.
Guðbjörg hefur m.a. starfað sem sérfræðingur hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, verkefnastjóri hjá Anza, verkefnastjóri hjá Kaupþingi, verkefnastjóri hjá Teris, útgáfustjóri hjá Landsbankanum, fagstjóri gagnaskila & eftirlits hjá Þjóðaskjalasafni og við ýmsa ráðgjöf.
Þórey er einn af ráðgjöfum Markaðsmála.
Þórey I. Guðmundsdóttir býr að víðtækri reynslu og þekkingu af rekstri, stjórnsýslu og þjónustu hins opinbera. Hún hefur lokið BA gráðu í stjórnmálafræði og ensku frá HÍ, MSc gráðu í alþjóðasamskiptum og utanríkisstefnu ríkja frá University of Bristol, MS gráðu í viðskiptafræði frá HÍ og Diploma í viðskipta- og rekstrarnámi frá EHÍ.
Þórey hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri Skálatúns, fjármálastjóri Reykjanesbæjar, fjármálastjóri LÍN, fjármálastjóri Umhverfisstofnunar og við ýmsa ráðgjöf varðandi rekstrargreiningar og fjárhagslegra endurskipulagninga.