Hjá Markaðsmálum er fjölbreytt þekking og reynsla. Sérfræðiteymið býr að þekkingu á sviði stafrænna umbreytinga, fjármála, fjárhagslegrar endurskipulagningar, breytingastjórnunar, upplýsingatækni, hagnýtingu gagna og lausna, markþjálfunar, teymisþjálfunar og á sviði skjala og gagnamála.

Guðbjörg Jóhannsdóttir og Þórey I. Guðmundsdóttir eru fastir ráðgjafar Markaðsmála. Til að styrkja og efla teymið enn frekar koma að vinnu fleiri ráðgjafar með þekkingu á viðeigandi sviði hverju sinni. Með þessum hætti er þjónusta Markaðsmála sveigjanleg og aðgengi að sérþekkingu traust.