Markaðsmál býður upp á alhliða ráðgjöf fyrir íslenskt atvinnulíf er varðar stafrænar umbreytingar.
Að svara þeirri þörf sem sérhver viðskiptavinur stendur frammi fyrir í síbreytilegu viðskiptaumhverfi nútímans. Umhverfi þar sem hagnýting tæknilausna og skipulags eru afgerandi þættir til að ná árangri á markaði.
Markaðsmál vinnur í samstarfi við alþjóðlega sérfræðinga á upplýsingatæknisviði sem búa yfir viðamikilli þekkingu og reynslu. Sérfræðinga með reynslu af að vinna með Íslenskum fyrirtækjum.
Markaðsmál leggur áherslu á að vinna þétt með viðskiptavinum, að setja fram niðurstöður á skýran hátt.
Markaðsmál ehf sérhæfir sig í að leiða fyrirtæki og stofnanir til að ná árangri á sínu sviði. Að innviðir fyrirtækja og stofnana styðji við skilvirkni, áræðni, gæði og hugvit sem skilar árangri í rekstri.
Markaðsmál þjónustar fyrirtæki, húsfélög og einstaklinga í rekstri með bókhald, gerð ársreikninga, skattskil, stofnun fyrirtækja og fjármál.